Fréttir

Breytt dagsetning á krakkafimleikunum næstu helgi.
Fimleikar | 30. október 2013

Breytt dagsetning á krakkafimleikunum næstu helgi.

Breytt dagsetning á krakkafimleikunum næstu helgi.

Næsti tími í krakkafimleikunum, færist yfir á sunnudaginn 3. nóvember þar sem fimleikadeildin er að halda Möggumótið á laugardeginum í íþróttaakademíunni. Mótið byrjar kl 8:30 og stendur yfir allan daginn eða til kl 18:00.
Æfingatímarnir verða þeir sömu, semsagt börn fædd árið 2011 kl 9:30-10:20, börn fædd árið 2010 kl 10:50-11:40, og börn fædd árið 2009 kl. 12-13.

Vonum að sem flestir láti sjá sig á
SUNNUDAGINN 3. NÓVEMBER

Kveðja Stjórn og þjálfarar

Starf Fimleikadeildarinnar í vetur
Fimleikar | 29. október 2013

Starf Fimleikadeildarinnar í vetur

Veturinn hjá Fimleikadeild Keflavíkur hefur farið vel af stað. Við erum gríðarlega ánægð með þann fjölda iðkenda sem hefur skráð sig og sótt æfingar og hlökkum við mikið til að stafa með þessum flottu hópum í vetur. Nokkrar breytingar hafa orðið hjá fimleikadeildinni en m.a. má nefa að Eva Berglind Magnúsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri, fór í framhaldsnám til Bandaríkjanna og viljum við nota tækirfærið og þakka henni kærlega fyrir vel unnin störf.

Mátun á morgun 23. september
Fimleikar | 22. september 2013

Mátun á morgun 23. september

Mátun verður aftur á morgun mánudaginn 23. september kl 16.00 - 18.00 og á miðvikudaginn 16.00 - 18.00. Síðan verður ekki aftur mátun fyrir ermalausa bolinn
fyrr en í lok október. Einnig er hægt að máta Keflavíkur fimleikabuxur stuttar og nýjan utanyfirgalla.

Nýir keppnisbúningar og utanyfirgallar hjá fimleikadeild Keflavíkur
Fimleikar | 20. september 2013

Nýir keppnisbúningar og utanyfirgallar hjá fimleikadeild Keflavíkur

Nýir keppnisbúningar og utanyfirgallar hjá Fimleikadeild Keflavíkur.

Síðermabolur er fyrir 4. þrep og niður. Ermalaus bolur er fyrir ponsurnar, 5 þrep og yngri hópfimleikahópana. Utanyfirgalli er með hettu fyrir stelpur og með kraga fyrir stráka. Merkingarnar eru alveg eins á stráka og stelpugöllunum.

Á morgun 21. september verður mátun fyrir ermalausa bolinn og utanyfirgallann. Einnig verður mátun fyrir stuttar fimleikabuxur merktar Keflavík. Mátunin verður á milli kl 11:00- 14:00

Námskeiðin okkar að hefjast
Fimleikar | 8. september 2013

Námskeiðin okkar að hefjast

Námskeiðin okkar hefjast í vikuna eftir ljósanótt:

Parkour byrjar 10.september (póstur hefur verið sendur á foreldra og tímar eru komnir inn í töfluna)
Krakkafimleikarnir byrja laugardaginn 14. september (póstur hefur verið sendur á foreldra, 2011 kl. 9:30-10:20, 2010 kl. 10:50-11:40 og 2009 kl. 12:00-13:00.

Æfingatafla og hópar
Fimleikar | 28. ágúst 2013

Æfingatafla og hópar

Höfum lokið við æfingatöflu og niðurröðun í hópa. Allir skráðir iðkendur ættu að fá tölvupóst með upplýsingum um í hvaða hóp þeir eru.

Við biðjum foreldra að fara inn á skráningarsíðuna og klára skráningu. Ef óskað er eftir því að greiða með millifærslu er bent á að hafa samband við netfangið jon@vl.is.

2.sæti á Unglingalandsmóti 2013
Fimleikar | 25. ágúst 2013

2.sæti á Unglingalandsmóti 2013

Um Verslunarmannahelgina fór fríður hópur stúlkna á Unglingalandsmót sem haldið var á Höfn í Hornafirði. Stúlkurnar höfðu æft saman sérstaklega fyrir þetta mót undir leiðsögn Heiðrúnar Rósar Þórðar...

Unglingalandsmót og Fimleikar og fjör
Fimleikar | 25. júní 2013

Unglingalandsmót og Fimleikar og fjör

Fimleikar og fjör Fimleikadeild Keflavíkur ætlar að bjóða upp á námskeiðið Fimleikar og fjör í júlí. Námskeiðið er fimleika-, íþrótta og hreystinámskeið fyrir alla krakka, stelpur og stráka á aldri...