Fréttir

H1 á Íslandsmóti Unglinga í Hópfimleikum
Fimleikar | 19. febrúar 2014

H1 á Íslandsmóti Unglinga í Hópfimleikum

Síðustu helgi fór fram Íslandsmót unglinga í Hópfimleikum á Selfossi, Keflavík átti þar fulltrúa í 2. flokki.

Stelpurnar stóðu sig vel og mátti sjá framfarir hjá hópnum frá síðasta móti. Okkar stelpur í H1 byrjuðu mótið á að dansa og gerðu það virkilega vel og fengu fyrir það 12,90 stig. Því næst fóru þær á dýnu og fengu út úr henni 10,67 stig og í lokin fóru þær á trampólín og fengu 10,63 stig. Í heildar stig hlutu þær 34,20 stig og urðu í 6. sæti.

Góður árangur og flottur hópur þarna á ferð.

Áfram Keflavík.

Frekari úrslit má finna hér: http://fimleikasamband.is/index.php/mot/urslit/item/337-íslandsmót-unglinga-í-hópfimleikum-úrslit