Fimm stúlkur í úrlvalshóp FSÍ
Fimleikadeild Keflavíkur er mjög stolt að eiga 5 stúlkur sem komist hafa áfram í úrvalshópa Fimleikasambands Íslands. Í úrvalshóp unglinga í stúlknaflokki komust þær Ingunn Eva Júlíusdóttir og Lilja Björk Ólafsdóttir. Í úrvalshóp stúlkna komust þær Laufey Ingadóttir og Hanna María Sigurðardóttir. Í úrvalshóp í hópfimleikum komst Eydís Ingadóttir. Við óskum þessum stúlkum innilega til hamingju með árangurinn. Á myndina vantar Lilju Björk sem býr erlendis núna.