Áhaldafimleikar karla

Áhaldafimleikar karla

Áhaldafimleikar karla er einstaklingsíþrótt þar sem einstaklingurinn þarf að tileinka sér sjálfstæði og aga í vinnubrögðum sínum til að ná árangri. Íþróttin er líkamlega mjög krefjandi. Nákvæmni og einbeiting er meðal lykilþátta við iðkun fimleika þar sem æfingar eru framkvæmdar við krefjandi aðstæður. Í áhaldafimleikum karla er keppt á 6 mismunandi áhöldum, gólfi, bogahesti, hringjum, stökki, tvíslá og svifrá.

Gólfæfingar

Einstaklingurinn framkvæmir stökk og fimleikaæfingar á gólfi sem sýna liðleika hans, styrk og jafnvægi. Hin hefðbundna gólfæfing er á bilinu 60-70 sekúndna löng og þarf að nýta gólfflötinn og hafa viðkomu í hverju horni áhaldagólfsins.

Bogahestur

Á bogahesti sýnir einstaklingurinn skærasveiflur og hringsveiflur. Hringsveiflur eru þó algengari en skærasveiflur og það má segja að hringsveiflur séu uppistaðan í æfingum á bogahesti. Einstaklingurinn sveiflar báðum fótum í hringi og gerir mismunandi æfingar á öllum hlutum bogahestsins. Hér reynir á styrk í öxlum, upphandleggjum og í baki. Bogahesturinn er talinn vera erfiðasta áhaldið í áhaldafimleikum karla ásamt æfingum í hringjum.

Hringir

Einstaklingurinn þarf að sýna fram á að hann búi yfir jafnvægi og styrk en einnig þarf hann að framkvæma kraftmiklar sveiflur án þess að hringirnir sveiflist fram og til baka. Að lokum þarf hann að gera afstökk sem þarf að vera í samræmi við erfiðleika æfinganna sem á undan komu.

Stökk

Fimleikamaðurinn hleypur 25 metra niður hlauparenning áður en hann stekkur á bretti og hoppar yfir hest. Mikilvægur þáttur í stökkinu er rýmisvitund einstaklingsins en hún gerir honum kleift að gera skrúfur og margföld heljarstökk eftir að spyrnt er frá stökkhestinum.

Tvíslá

Tvíslá karla krefst þess að fimleikamaðurinn sé sterkur í öxlum og upphandleggjum. Á tvíslánni framkvæmir einstaklingurinn æfingar sem sýna fram á samhæfingu hans, jafnvægi og styrk.

Svifrá

 Einstaklingurinn heldur í svifránna og framkvæmir svokallaða risasveiflur úr handstöðu. Kröfur eru gerðar um að fimleikamaðurinn geri flugæfingar þar sem hann sleppir ránni  og grípur aftur. Afstökkið þarf að vera í samræmi við erfileika æfinganna sem á undan komu og gerðar eru kröfur um að lenda án þess að taka skref eða hopp.