Fréttir

Fimleikar | 25. nóvember 2026

Flott byrjun á keppnistímabilinu hjá Fimleikadeildinni

Flott byrjun á keppnistímabilinu hjá Fimleikadeild Keflavíkur
Haustmót yngri flokka fór fram um helgina og átti Keflavík þar fimm lið, þrjú stúlknalið í 4. flokki og tvö drengjalið í KKY og KKE.
Margir iðkendur voru að stíga sín fyrstu skref á keppnisgólfinu og var einstaklega gaman að sjá metnaðinn, samheldnina og gleðina sem einkenndi hópinn alla helgina.
Glæsilegur árangur hjá drengjaliðunum
Strákarnir í KKE áttu frábært mót og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu á öllum þremur áhöldunum ásamt því að tryggja sér 1. sætið í fjölþraut.
Í KKY voru flestir strákanna að taka þátt í sínu fyrsta fimleikamóti. Þeir sýndu flotta frammistöðu og höfnuðu í 4. sæti samanlagt, auk þess að ná 3. sæti í dansi og 2. sæti á trampólíni.
Sterk frammistaða hjá 4. flokki
Í 4. flokki keppa tveir árgangar saman og átti Keflavík eitt lið á eldra ári og tvö lið á yngra ári.
Stelpurnar í 4. flokki eldri áttu virkilega gott mót og tryggðu sér 3. sæti samanlagt af 31liði, ásamt 3. sæti í dansi og 2. sæti á dýnu.
Stelpurnar í 4. flokki yngri voru einnig að stíga sín fyrstu skref á keppnisgólfinu. Annað liðið hafnaði í glæsilegu 5. sæti samanlagt, sem er einstaklega flottur árangur á yngra ári í flokknum. Hitt liðið sýndi einnig flotta frammistöðu og mikinn metnað. Bæði liðin geta verið stolt af sinni fyrstu keppnisreynslu og tekið margt jákvætt með sér inn í framhaldið.
Það er virkilega gaman að sjá uppskeruna eftir mikla og góða vinnu iðkenda og þjálfara síðustu mánuði. Framtíðin er björt hjá þessum flottu krökkum og verður spennandi að fylgjast með framförum þeirra á keppnistímabilinu.
Fimleikadeild Keflavíkur óskar öllum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með frábæra mótshelgi!