Við erum algjörir meistarar!
Um helgina fór fram Vormót Fimleikasambandsins í hópfimleikum yngri flokka og í áhaldafimleikum og áttu okkar iðkendur glæsilegan árangur á mótinu.
Hópfimleikamótið fór fram í Ármanni og stóð alla helgina. Keflavík átti 6 lið á mótinu:
- Fjögur 4. flokks lið
- Eitt 5. flokks lið
- Eitt lið í KKyngri
Það er gaman að segja frá því að í öllum þessum flokkum sigraði Keflavík í gólfæfingum.
Strákanir okkar héldu sigurgöngu sinni áfram og unnu mótið, ekki nóg með það þá unnu þeir öll áhöld einnig, þeir hafa ekki farið á mót á þessu keppnistímabili án þess að taka gullið með sér heim. Það voru samtals 6 lið sem kepptu.
Hluti af 4. flokk eldri keppti í A-deild, þær gerðu sér lítið fyrir og voru í 3. sæti í samanlögðum árangur (af 9 liðum) ásamt því að vera í 1. sæti á gólfi og 4. sæti á trampólíni. Hinn hluti hópsins keppti í C-deild og voru þær í 1. sæti í samanlögðum árangri (af 12 liðum) og í 1. sæi á gólfi og í 2. sæti á trampólíni.
4. flokkur yngri 1 og 2 kepptu í B-deild. 4. flokkur yngri 2 voru í 2. sæti í samanlögðum árangri (af 8 liðum), í 1. sæti á gólfi og í 4. sæti á dýnu og trampólíni. 4. flokkur yngri 2 voru í 5. sæti í samanlögðum árangri, í 3. sæti á gólfi og 5. sæti á dýnu.
Áhaldafimleikamótið fór fram í Gerplu og átti Keflavík einn keppanda á mótinu. Guðlaug Emma Erlingsdóttir keppti í frjálsum æfingum í kvennaflokki. Guðlaug stóð sig afar vel og var í 6. sæti í fjölþraut og í 1. sæti á stökki, en þetta er hennar fyrsta mót í frjálsum æfingum í kvennaflokki.
Við erum stolt af okkar öllu flottu keppendum og óskum þeim og þjálfurum þeirra hamingju með árangurinn.