Úrslit Íslandsmóts í þrepum
Íslandsmót í þrepum var haldið s.l. Helgi og við stóðum okkur með stakri prýði. Við eigum þrjár stúlkur í topp 10. í 3. Þrepi, Elma Rósný Arnarsdóttir,Ingunn Eva Júlíusdóttir og Sólný Sif Jóhannsdóttir, eina í topp 10 í 4.þrepi, Alísa Rún Andrésdóttir og tvær í topp 20 í 5.þrepi, Eva María Davíðsdóttir og Hanna María Sigurðardóttir. Þetta er mjög fínn árangur sem mun bara aukast á næstu árum ef við höldum rétt á spöðunum.
3.þrep, Sólný Sif jóhannsdóttir lenti í 1.Sæti á stökki með einkunnina 11,800. Ingunn Eva Júlíusdóttir lenti í 2.sæti á tvíslá með einkunnina 15,967.
4.þrep,Alísa Rún Andrésdóttir lenti í 4.sæti á jafnvægisslá með einkunnina 15,433.
Allar stúlkurnar stóðu sig með prýði og er hægt að nálgast einkannir mótsinns hér http://www.fbjork.is/Forsida?i=12&expand=12&b=1,1646,News.html.