Fréttir

Fimleikar | 11. mars 2008

Unglingamót í hópfimleikum

Unglingamót í hópfimleikum fór fram 9. febrúar síðastliðin. Mótið var haldið á Seltjarnarnesi og átti Keflavík eitt lið á mótinu sem samanstóð af duglegum og áhugasömum stúlkum úr félaginu. Þær stóðu sig með stakri prýði og voru hársbreidd frá verðlaunasæti á bæði dýnu og trampólíni.
Einkunnir þeirra voru eftirfarandi:
Dýna: 6.50
Trampólín: 6,40
Liðið samanstóð af; Arndísi Snjólaugu, Brynju, Elvu Dögg, Elvu Maríu, Evu Lóu, Helgu Rún, Kristínu Marie, Ósk Matthildi, Sigfríði og Telmu Guðlaugu.