Unglingamót í hópfimleikum
Unglingamót í hópfimleikum verður haldið í íþróttahúsinu við Sunnubraut laugardaginn 13. febrúar. Fyrri hluti mótsins hefst kl. 10.00 með almennri upphitun, áhaldaupphitun er kl. 10.20 og hefst mótið kl. 11.15 og er áætlað að því ljúki kl. 12.55. Seinni hluti mótsins hefst kl. 13.00 með almennri upphitun, áhaldaupphitun er kl.13.20 og hefst mótið síðan kl. 15.15. Áætluð mótslok eru kl. 18.10. Aðgangseyrir á mótið er kr. 500 en frítt er fyrir 12 ára og yngri.