Fréttir

Fimleikar | 28. janúar 2009

Þrepamót FSÍ

Laugardaginn 24. janúar fór fram þrepamót FSÍ í áhaldafimleikum.  Fimleikadeild Keflavíkur sendi 5 keppendur í 4. þrepi.  Rakel Halldórsdóttir, Helena Rós Gunnarsdóttir, Eydís Ingadóttir, Inga Sól Guðmundsdóttir og Agnes Sigurþórsdóttir stóðu sig allar mjög vel og voru félaginu sínu til sóma.  Rakel, Helena og Eydís unnu sig upp um þrep og keppa því í 3. þrepi næsta vetur.  Rakel var í 1. sæti á slá með einkunnina 14,1  og var í 4 sæti samanlagt með 52,76 stig.  Helena var í 4. sæti samanlagt með einkunnina 55,62.  Til hamingju stelpur með glæsilegan árangur.