Fréttir

Fimleikar | 25. janúar 2011

Þrepamót - 5. þrep

Helgina 29. - 30. janúar fer fram þrepamót Íslenska fimleikastigans.  Að þessu sinni verður einungis keppt í 5. þrepi.  Fimleikadeild Keflavíkur sendir 16 stelpur á mótið.  Þær eru á aldrinum 9 - 12 ára.  Mótið fer fram í Ásgarði, fimleikahúsi Stjörnunnar í Garðabæ.  Við óskum stúlkunum góðs gengis og góðrar skemmtunar um helgina.

Þjálfarar og stjórn