Þakkir og nýtt ár
Fimleikadeild Keflavíkur óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og þakkar ykkur einnig kærlega fyrir árið sem er að líða. Árið 2010, var ansi viðburðaríkt hjá deildinni, nýtt húsnæði, 25 ára afmæli og margt fleira.
Æfingar á nýju ári hefjast þriðjudaginn 4. janúar. Við hlökkum til að sjá ykkur spræk og hress eftir hátíðina.
Fimleika- og nýárskveðja
Þjálfarar og stjórn