Sumaræfingar í fimleikum.
Sumaræfingar hjá fimleikadeildinni hefjast miðvikudaginn 10. júní. Deildin ætlar að bjóða öllum iðkendum 5 ára og eldri upp á æfingar í sumar ef skráning verður næg í hópa. Kennt verður mánudaga - fimmtudaga tvo tíma í senn. Æfingarnar verða annað hvort í B-sal íþróttahúsins við Sunnubraut eða í íþróttahúsi Heiðarskóla.
Júní æfingarnar kosta kr. 6.000. Skráning verður í K-húsinu við Hringbraut fimmtudaginn 4. júní frá kl. 17.00 - 19.00.
Mynd frá innanfélagsmóti Fimleikadeildar Keflavíkur.