Fréttir

Strákar í fyrsta sinn á Íslandsmóti
Fimleikar | 18. mars 2014

Strákar í fyrsta sinn á Íslandsmóti

Næst komandi helgi fer fram Íslandsmót í þrepum á Akureyri. Þangað fara 16 stúlkur og 2 drengir fyrir hönd Fimleikadeildar Keflavíkur. Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem drengir hafa unnið sér inn rétt til að keppa á FSÍ móti. En það eru þeir Samúel Skjöldur Ingibjargarson og Alexíus Ólafsson sem hafa náð þessum glæsilega árangri og verða þeir án efa flottir fulltrúar okkar á mótinu. Innilega til hamingju drengir og Keflavík.

 

Áfram Keflavík