Skráning hafin í fullorðinsfimleikana
Skráning er hafin í fullorðinsfimleikana.
Hægt er að skrá sig með því að smella á skráning iðkenda hér til hliðar. Þar er námskeiðið valið og gengið frá greiðslu. Ef skráð er í gegnum netið þarf að greiða með kreditkorti. Ef ekki er greitt með kreditkorti er hægt að hafa samband við framkvæmdastjóra í síma 421-6368 og fá bankaupplýsingar eða koma upp í Akademíu og greiða í afgreiðslu.
Iðkendum mun síðan vera sendur póstur sem inniheldur æfingatíma og hvenær fyrsta æfing er.