Skráning hafin fyrir krakkafimleikana
· Krakkafimleikar 2 ára, 3 ára og 4 ára
Fyrsta skref fyrir foreldra er að skrá sig inn í kerfið. Smellt er á skráning iðkenda. Þar þarf að haka við samþykkja skilmála og smella svo á nýskráningu þar sem kennitala foreldra er skráð og lykilorð valið. Ef börn hafa verið skráð áður í krakkafimleikum á að vera hægt að nota lykilorð síðasta árs. Næst er smellt á námskeið í boði og þar ættu foreldrar að velja Krakkafimleikar og velja svo viðeigandi aldur. Ekki er forskráning fyrir þessi námskeið þar sem að hóparnir munu sjálfkrafa skiptast eftir aldri. Fyrsta æfingin mun vera 12. janúar en foreldrum mun berast tölvupóstur varðandi þjálfara og fleira. Námskeiðið verður fram að Páskum og annað námskeið mun síðan hefjast í apríl.
Ef foreldrar ætla ekki að greiða með kreditkorti vinsamlegast hafið samband við framkvæmdarstjóra.