Fréttir

Fimleikar | 26. nóvember 2008

Síðasta æfing krakkahópa

Síðasta æfing krakkahópa fyrir jól verður laugardaginn 29. nóvember.  Æfingin verður í B-sal íþróttahúsins við Sunnubraut á sama tíma og hefur verið í vetur.  Foreldrar og systkini eru velkominn að taka þátt í fjörinu.  Ný námskeið í krakkahópum hefjast svo aftur í janúar.  Þau verða auglýst eftir áramót.  Vinsamlegast athugið að þetta eru ný námskeið og allir þurfa að skrá sig.