Fréttir

Sara Glóð Jónsdóttir ráðin yfirþjálfari almennrar deildar hjá Fimleikadeild Keflavíkur
Fimleikar | 20. júní 2025

Sara Glóð Jónsdóttir ráðin yfirþjálfari almennrar deildar hjá Fimleikadeild Keflavíkur

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Sara Glóð Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirþjálfari í almennri deild hjá Fimleikadeild Keflavíkur.

Sara hefur víðtæka reynslu úr fimleikaheiminum, bæði sem iðkandi og þjálfari. Hún æfði áhaldafimleika hjá Gerplu á árunum 1999–2007 og síðar hjá Fimleikadeild Ármanns frá 2008 til 2014. Þar hóf hún einnig sinn þjálfaraferil og starfaði sem þjálfari hjá Ármanni á sama tímabili.

Á ferli sínum sem þjálfari hefur Sara lokið námskeiðunum 1A og 1B í gamla fræðslukerfi Fimleikasambands Íslands, sem gerir henni kleift að fara beint á næsta stig, 2B, og klára þar með annað stig nýja fræðslukerfisins. Auk þess er hún með BA gráðu í lögreglufræðum.

Sara, sem er 31 árs gömul og tveggja barna móðir, kemur til með að leiða grunnhópa, krakkafimleika, krílafimleika, Fimleika fyrir alla og Fimleika fyrir börn með sérþarfir. Hún tekur þannig við verkefnum sem Íris Þórdís, yfirþjálfari áhaldafimleika, hefur sinnt samhliða öðrum störfum undanfarna mánuði. Íris mun áfram halda utan um framhaldshópa og áhaldafimleika.

Sara mun hefja formlega störf í ágúst, en hún er nú þegar komin til starfa á skrifstofunni þar sem hún aðstoðar við undirbúning fyrir komandi vetur og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum á vegum deildarinnar.

Við fögnum því innilega að fá Söru til liðs við okkur. Með reynslu hennar, faglegan bakgrunn og brennandi áhuga á fimleikum, erum við sannfærð um að hún muni verða dýrmæt viðbót við teymið okkar.