Rekstrarstjóri fimleikadeildar Keflavíkur
Langar þig að vera rekstrarstjóri fimleikadeildar Keflavíkur?
Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir að ráða rekstrarstjóra til að annast daglegan rekstur félagsins. Hlutastarf kemur til greina.
Í fimleikadeildinni eru um 400 iðkendur á aldrinum 2-18 ára. Mikil uppbygging hefur verið í starfi deildarinnar og leitar stjórn nú að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á því að leiða deildina og taka þátt í krefjandi og skemmtilegum verkefnum framundan.
Starfssvið
- Daglegur rekstur félagsins
- Fjármála- og starfsmannastjórnun
- Undirbúningur og framkvæmd ýmissa viðburða á vegum félagsins
- Samskipti við félagsmenn, foreldra og iðkendur
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Þekking og reynsla af rekstri
- Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika til þess að vinna með öðrum.
- Drifkraftur og frumkvæði
Við bjóðum
- Áhugavert starf hjá góðu íþróttafélagi
- Stjórn sem fundar með rekstrarstjóra einu sinni í mánuði
Umsóknir skal senda á tölvupóstfangið fimleikar@keflavik.is fyrir 15. febrúar 2020 og nánari upplýsingar veitir María Jóna Jónsdóttir, stjórnarkona fimleikadeildar Keflavíkur í gegnum sama netfang.
Stjórn fimleikadeildar Keflavíkur.