Fréttir

Fimleikar | 19. október 2004

Opinn dagur

Laugardaginn 23. október verður opinn dagur hjá Fimleikadeild Keflavíkur.  Með honum viljum við lífga upp á hefðbundna starfsemi og leyfa gestum að kynnast starfi deildarinnar.  Dagskráin er frá 10.15-13.15 í íþróttahúsinu við Sunnubraut og munu iðkendur fá nánari upplýsingar frá þjálfara sínum hvenar þeir eiga að mæta.  Allir iðkendur fá að spreyta sig og hvetjum við alla til að koma og vera með okkur þennan dag.