Nýtt námskeið fyrir boltakrakka! Styrkur, þrek og teygjur.
Fimleikadeild Keflavíkur ætlar að fara með stað með nýtt námsskeið. Það heitir styrkur, þrek og teygjur fyrir boltakrakka. Þetta námsskeið hentar krökkum sem eru í boltaíþróttum og langar til þess að auka við styrk, þrek og liðleika. Þjálfarinn heitir Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir. Námsskeiðið verður haldið á mánudögum og miðvikudögum kl 19.00 - 20.00 í Akademíunni. Námsskeiðið verður frá 19.okt - 30. nóv og kostar 13.000 kr, hægt er að skipta greiðslunni upp í tvær greiðslur. Skráning fer fram á heimasíðu deildarinnar www.keflavik.is/fimleikar. Einungis 15 pláss í boði. Þetta er fyrir krakka fædda 2004 - 2001.