Nýr hópfimleikaþjálfari
Fimleikadeild Keflavíkur var gera tveggja ára samning við nýjan yfirþjálfara í hópfimleikum. Þjálfarinn heitir Jóhanna Runólfsdóttir og er íþróttafræðingur að mennt. Jóhanna hefur mikla reynslu í þjálfun hópfimleika, en hún hefur unnið hjá Fimleikadeildinni á Selfossi og í Stjörnunni. Einnig hefur hún tekið fjöldan allan að námsskeiðum hjá Fimleikasambandi Íslands og er með dómararéttindi í hópfimleikum. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til okkar og hlökkum við til að byggja upp hópfimleikana hjá Fimleikadeild Keflavíkur með henni.