Fréttir

Fimleikar | 9. janúar 2010

Nýja fimleikahúsið

Síðusta daga hafa staðið yfir flutingar úr b-salnum á Sunnubraut yfir í íþróttaakademíuna. Nýja húsið er algjör bylting fyrir fimleikana og hlökkum við til að hefja starfsemi þar.

Æfingar hjá Fimleikadeildinni hefjast í Íþróttaakademíunni mánudaginn 11.

janúar.  En þar sem enn er verið að vinna við gryfjuna viljum við biðja alla að sýna umburðarlyndi í næstu viku.  Áætlað er að vinna við gryfjuna verði lokið föstudaginn 15. janúar.

Við viljum koma á farmfæri þakklæti til þeirra sem hafa aðstoðað við flutningana og fleira kærlega fyrir.

 

Mynd frá vf.is