Nettómótið
Nettómót fimleikadeildar Keflavíkur 2015
Dagana 23. – 24. janúar verður innanfélagsmót fimleikadeildar Keflavíkur haldið í Íþróttaakademíunni. Allir iðkendur á aldrinum 5 – 18 ára munu láta ljós sitt skína þessa tvo daga. Mótið skiptist í 5 hluta og eru tímasetningarnar eftirfarandi:
1. hluti – föstudaginn 23. janúar
Í þessum hluta keppa drengirnir okkar en við erum afskaplega stolt af því hversu margir drengir eru að æfa. Þeir hópar sem eru að keppa í þessum hluta eru margir að stíga sín fyrstu skref í fimleikum og einnig keppni. Hóparnir eru eftirfarandi:
Strákar 2, strákar 3 og strákar 4.
Mæting: 16:15
Innmars hefst: 16:40 Keppni lokið: 17:30
2. hluti – föstudaginn 23. janúar
Í þessum hluta verður keppt í stökkfimi. Stökkfimi er ný grein innan fimleikana og er það einstaklingskeppni fyrir hópfimleikastúlkurnar. Einnig munu þeir hópar sem eru að fara að keppa á hópfimleikamótum sýna keppnisæfingar sínar. Í þessum hluta keppa stúlkurnar í H1, H2, H3 og H4
Mæting: 17:00 Innmars hefst: 18:15 Keppni lokið: 20:30
3. hluti – laugardagurinn 24. janúar
Í þriðja hluta mótsins ætla yngstu dömurnar okkar að láta ljós sitt skína. Þær munu keppa í 8. þrepi íslenska fimleikastigans. Það verða hóparnir
09– split, 09 - brú, 09 spíkat, 09 – handahlaup, 08 – brú, 08 – splitt og 08 - spíkat sem mæta til leiks.
Mæting: 8:10 Innmars: 8:35 Keppni lokið: 10:30
4. hluti – laugardaginn 24. janúar
Í fjórða hluta mótsins ætla eftirfarandi hópar að keppa: A4, 07 – splitt, 07 spíkat, 6. Þrep og 5. þrep létt og A3. Þær munu keppa í 5. þrep létt og 6. þrepi íslenska fimleikastigans.
Mæting: 11:00 Innmars: 11:30 Keppni lokið: 13:30
5. hluti – laugardaginn 24. janúar
Í fimmta hluta mótsins keppa þeir iðkendur sem eru lengst komnir í deildinni. Það verður keppt í 1., 3., 4., og 5. þrepi kvenna og 4. og 5. þrepi karla. Í þessum hluta verða Innanfélagsmeistarar deildarinnar í áhaldafimleikum krýndir.
Mæting: 13:30 Innmars: 14:10 Keppni lokið: 17:30
Við hvetjum foreldra til að koma og horfa á iðkendur deildarinnar keppa. Það verður frítt inn og sjoppa á staðnum.