Fimleikar | 23. nóvember 2004
Möggumót úrslit
Hér koma úrslit úr Möggumótinu. Fengum frétt hjá vf.is og þökkum þeim kærlega fyrir. En mótið gekk mjög vel og þökkum við þjálfurum og dómurum kærlega fyrir.
|
|
Fimleikadeild Keflavíkur stóð fyrir Möggumóti þann 12. nóvember síðastliðinn. Mótið heitir eftir Margréti Einarsdóttur sem stofnaði fimleikadeildina 12. september 1985.
Mótið er ætlað fyrir stúlkur sem ekki eru farnar að keppa á mótum Fimleikasambands Íslands en eru að þjálfa sig upp í það. Alls voru það 33 stúlkur úr Fimleikadeild Keflavíkur sem tóku þátt í Möggumótinu en þær voru á aldrinum 8-11 ára. Þrátt fyrir aldursmun keppenda kepptu stúlkurnar allar um sömu verðlaun þar sem þær eru allar að æfa sömu æfingarnar.
Sigurvegarar í eftirtöldum greinum:
Stökk 1. sæti Hulda Sif Gunnarsdóttir 2. sæti Olga Ýr Georgsdóttir 3. sæti Rakel Halldórsdóttir
Tvíslá 1. sæti Olga Ýr Georgsdóttir 2. sæti Sólný Sif Jóhannsdóttir 3. sæti Brynja Rúnarsdóttir
Slá 1. sæti Helga Rún Jónsdóttir 2. sæti Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir 3. sæti Alexía Rós Viktorsdóttir og Elva Margrét Sigurbjörnsdóttir
Gólf 1. sæti Sandra Ósk Aradóttir 2. sæti Anna Kristín Árnadóttir 3. sæti Elva Margrét Sigurbjörnsdóttir
Samanlagt 1. sæti Helga Rún Jónsdóttir 2. sæti Olga Ýr Georgsdóttir 3. sæti Hulda Sif Gunnarsdóttir
Tilviljanakennd liðakeppni – stigahæsta liðið Karólína M. Baldvinsdóttir Elva Margrét Sigurbjörnsdóttir Olga Ýr Georgsdóttir
Þjálfarar stúlknanna eru Robert, Ionela, Tinna Ösp, Eva Dögg og Kolbrún Ósk
Mynd 1: Ólöf Rún á tvíslá. Mynd 2: Margrét Einarsdóttir mætti að sjálfsögðu á sitt eigið mót. Mynd 3: Ungu dömurnar voru mjög einbeittar á mótinu.
VF-myndir/ Jón Björn
|