Fréttir

Fimleikar | 12. maí 2009

Mínevrumót

Mínevrumót fimleikafélags Bjarkanna í Hafnarfirði var haldið síðastliðinn laugardag.  31 duglegar stúlkur úr Keflavík fóru á mótið í 4, 5. og 6. þrepi íslenska fimleikastigans.  Mótið er liðakeppni og sendi Keflavík 5 lið sem stóðu sig glæsilega.  4. þrep, 5. þrep 99-01, 5. þrep létt og 6. þrep 2001 urðu í öðru sæti og 5. þrep "98 urðu í þriðja sæti.  Frábær árangur hjá þessum stelpum.