Fréttir

Mílanó meistaramót
Fimleikar | 17. apríl 2013

Mílanó meistaramót

 

Laugardaginn 6. apríl fór fram Mílanó meistaramót í áhaldafimleikum. Kvennahlutinn var haldinn í Stjörnunni í Garðabænum. Keflavík átti einn fulltrúa á því móti og var það Lilja Björk Ólafsdóttir.

Lilja stóð ótrúlega vel og var í fyrsta sæti á tvíslá, fyrsta sæti í gólfæfingum og í öðru sæti í samanlögðum árangri.

Fimleikadeildin óskar Lilju innilega til hamingju með árangurinn.