Mátunardagur
Þá er komið að mátunardeginum hjá okkur sem margir hafa verið að bíða eftir. Næsta þriðjudag 2. október frá klukkan 16:00-19:00 geta stelpurnar komið með foreldrum sínum upp í Akademíu til að máta félagsbolina. Ef stelpurnar eiga ekki félagsbolinn eða bolurinn er orðinn of lítill hvet ég ykkur til að mæta. Einnig mun Linda frá Fimleikum ehf vera með sölubás á sama tíma. Hún mun vera með boli, stuttbuxur, ólar og fleiri fimleikavörur. Um að gera að nýta því tækifærið og kíkja á okkur á þriðjudaginn.