Fréttir

Lovísa yfirþjálfari yngri flokka í hópfimleikum
Fimleikar | 25. júní 2025

Lovísa yfirþjálfari yngri flokka í hópfimleikum

Fimleikadeild Keflavíkur hefur gengið frá ráðningu á yfirþjálfara yngri flokka í hópfimleikum og það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Lovísa Ósk Ólafsdóttir hefur tekið við stöðunni.

Lovísa, sem er á tvítugsaldri, hefur um árabil starfað sem þjálfari innan deildarinnar og á að baki flottan feril bæði sem iðkandi og þjálfari. Hún tekur við af Eriku Dorielle Sigurðardóttur sem hefur gegnt stöðu yfirþjálfara hópfimleika í fjölda ára. Við fögnum ráðningu Lovísu og þökkum Eriku innilega fyrir hennar mikilvæga framlag til deildarinnar í gegnum tíðina – hennar verður saknað. Erika, sem kláraði BA gráðu nýverið, ákvað að nýta menntun sína og réði sig til starfa hjá Reykjanesbæ fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Lovísa mun vera yfirþjálfari í 3., 4. og 5. flokki í hópfimleikum. Í kjölfar þess að Erika er hætt hefur var ákveðið að breyta skipulagi yfirþjálfara deildarinnar. Þjálfarar 1. og 2. flokks í hópfimleikum og K1 í áhaldafimleikum heyra beint undir framkvæmdastjóra deildarinnar. Lovísa kemur inn í rúmlega 70% stöðu hjá deildinni og mun halda áfram að þjálfa 4. flokk í hópfimleikum samhliða starfi sínu sem yfirþjálfari.

Lovísa æfði áhaldafimleika hjá Fimleikadeild Keflavíkur til ársins 2019 áður en hún færði sig yfir í hópfimleika. Hún blómstraði í hópfimleikum og æfði hún greinina til ársins 2022 og snéri aftur á þessu keppnistímabili og keppti með meistaraflokki í hópfimleikum.

Lovísa hefur unnið ötullega að þjálfaramenntun sinni innan fræðslukerfis Fimleikasambands Íslands. Hún hefur lokið móttökunámskeið 1 í hópfimleikum og stefnir á að ljúka 3. stigi á næsta keppnistímabili og jafnvel 4. stigi – en með því fær hún svokallað gulleyfi. Þar með telst hún fullmenntuð að mati Fimleikasambandsins, með skyldu til reglulegrar endurmenntunar í formi fyrirlestra. Auk þess er Lovísa dómari í hópfimleikum og stundar nám í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.

Við hlökkum til samstarfsins með Lovísu í þessu nýja hlutverki og erum viss um að hún muni leiða yngri flokkana af fagmennsku og eldmóði.