Fréttir

Fimleikar | 29. júní 2005

Lokahátíð Fimleikadeildar Keflavíkur

Lokahátíð Fimleikadeildar Keflavíkur var haldin fimmtudaginn 26. maí í sal Myllubakkaskóla.  Fullt af börnum mættu og höfðu gaman.  Farið var í leiki, þrautabraut var í leikfimsalnum og síðan var dansað.  Í lokin fengu allir svala og prins pólo.  Stjórn og þjálfarar deildarinnar þakka fyrir veturinn og vonandi hittumst við hress í haust.