Lilja Björk valin í landsliðið.
Landsliðsþjálfarar hafa valið landsliðhópa fyrir Norðurlandamót í áhaldafimleikum karla og kvenna. Mótið fer fram í Svíþjóð um páskana og keppt verður í unglingaflokki og fullorðinsflokki. Ísland er að fara með 20 keppendur á mótið.
Lilja Björk Ólafsdóttir var valin í unglingalandsliðið. Stór glæsilegur árangur og viljum við óska Lilju innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.
Áfram Keflavík