Fréttir

Laufey vann Mílanó meistaramótið.
Fimleikar | 26. apríl 2015

Laufey vann Mílanó meistaramótið.

Laugardaginn 25. apríl síðastliðinn fór fram Mílanó meistaramót 2015. Keflavík átti þar 4 stúlkur sem allar stóðu sig vel. Ber þar hæðst að Laufey Ingadóttir sigraði stúlknaflokkinn með heildareinkunina 44,168. Er hún þar með búin að bæta enn einum titli í safnið, glæsileg íþróttakona þar á ferð.

Hanna María Sigurðardóttir keppti í unglingaflokki, hún lauk keppni með 42,000 í áttunda sæti.

Alísa Rún Andrésdóttir keppti einnig í unglingaflokki, en keppti aðeins á tveimur áhöldum sökum meiðsla.

Kolbrún Júlía Guðfinnsd Newman keppti í kvennaflokki, hún keppti einnig aðeins á tveimur áhöldum.

Öll úrslit má finna hér: http://score.sporteventsystems.se/Webresult.aspx?id=189