Fréttir

Langar þig í öðruvísi líkamsrækt?
Fimleikar | 17. janúar 2013

Langar þig í öðruvísi líkamsrækt?

 

Langar þig í öðruvísi líkamsrækt?

Fimleikar eru ekki bara fyrir krakkana. Fimleikadeild Keflavíkur býður upp á fimleika fyrir fullorðna 2x í viku í 10 vikur. Þjálfari er Henrik Pilgaard frá Danmörku. Skemmtileg upphitun ásamt þreki og kennslu í fimleikum.   Þú þarft ekki að hafa grunn í fimleikum til að sækja þetta námskeið.  Aldur 18+.

Æfingar eru á mánudögum 19:00-21:00 og miðvikudögum 19:30-21:30.

Ókeypis prufutímar í næstu viku, mánudag og miðvikudag.

Það er aldrei of seint að læra gera handstöðu, handahlaup eða heljarstökk.

Skráning er hafin :)

Ef það vakna einhverjar spurningar er hægt að hafa samband við framkvæmdastjóra.