Fréttir

Fimleikar | 4. mars 2008

Konutímar

Jæja kæru konur

Er ekki mál að halda fjörinu áfram ? Hefjum æfingar aftur næsta þriðjudag 04.mars 2008 klukkan 18:00-19:30.  Það eru 2 kostir, annars vegar að æfa einu sinni í viku á fimmtudögum 18:30-20:30 æfingagjöld 4.500.- á mánuði. Hins vegar að æfa 2 í viku, á fimmtudögum 18:30-20:30 og á þriðjudögum 18:00-19:30 æfingagjald 6.000.- á mánuði.

Það eru allir velkomnir að koma og vera með, við munum bæta inn þjálfurum eftir fjölda þátttakenda. Endilega lítið við og prófið ef þið hafið áhuga.

Fimleikasnillingar sem kláruðuð síðasta námskeið - hlökkum til að hitta ykkur og minnum á tímann í Garðabænum með halastjörnunum á sunnudagskvöldið 20:00-22:00.

Saknaðar kveðja og hlökkum til að byrja aftur Þjálfarar.