Konukvöld
Fimleikadeild Keflavíkur verður með konukvöld fimmtudaginn 11. mars frá kl. 20.00-23.00 á Nesvöllum. Allar konur bæjarins eru velkomnar. Boðið verður uppá ýmsar skemmtilegar kynningar. Marta Eiríks verður veislustjóri ásamt því að boðið verður uppá dúndur dagskrá. Breiðbandið mætir á staðinn. Rúsinan í pusluendanum er happdrættið okkar, þar sem boðið er uppá fjölda frábærra vinninga. Þetta er liður í fjáröflun Fimleikadeildarinnar, en hópur iðkenda fer á Eurogym fimleikahátíð sem haldin verður í Danmörku í sumar. Miðaverð á konukvöldið er stillt í hóf og er kr. 1.000. Þær konur sem ekki hafa krækt sér í miða hjá Fimleikadeildinni geta keypt miða við innganginn umrætt kvöld.
Auglýsingu um kvöldið má sjá hér