Keyrslumót fyrir EM og HM
Laugardaginn 2. október fer fram keyrslumót fyrir Evrópumótið í hópfimleikum og Heimsmeistarmótið í áhaldafimleikum. Mótið fer fram í nýju fimleikahúsi Stjörnunnar, í Ásgarði, og hefst kl. 17:30.
Í hópfimleikum eru 4 lið að fara að keppa fyrir hönd Íslands, tvö kvennalið, unglingalið kvenna og karlalið. Í áhaldafimleikum verða okkar allra fremstu keppendur.
Þetta verður sannkölluð fimleikaveisla og hvetjum við fólk til að kíkja við og sjá hvað við eigum fært fimleikafólk á Íslandi.