Keflavíkurstúlkur í Hæfileikamótun FSÍ
Um síðustu helgi fór fram hæfileikamótun í hópfimleikum hjá Fimleikasambandinu á Selfossi en æfingin var í boði fyrir drengi og stúlkur fædd 2009-2012. Til þess að verða boðið þurftu iðkendurnir að uppfylla ákveðin lágmörk í getu.
Keflavík átti 5 stúlkur sem uppfylltu þessi lágmörk og sýndu hvað í þeim býr en þær voru:
- Anna María Pétursdóttir - 2009
- Auður Eyfjörð Ingvarsdóttir - 2009
- Kamilla Magnúsdóttir - 2011
- Patrycja Dobrenko - 2010
- Steindís Erla Brynjarsdóttir - 2012
Stelpurnar stóðu sig mjög vel á æfingunni og höfðu gaman af. Hér má sjá myndband af æfingunni, en þar má sjá okkar iðkendum bregða fyrir í flottum stökkum: