Fréttir

Fimleikar | 14. desember 2011

Jólasýning

Jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur var haldin sunnudaginn 11. desember.   Eins og undanfarin ár voru sýningarnar tvær og var fullt á báðum.  Allir iðkendur stóðu sig með mikilli prýði og voru deildinni sinni til sóma.  Tveir jólasveinar mættu á svæðið og vakti  það mjög mikla lukku sérstaklega fyrir yngstu kynslóðina.

Við viljum þakka áhorfendum kærlega fyrir komuna á jólasýninguna.

Einnig viljum við taka fram að vikuna 12- 16 desember verða æfingar hjá öllum hópum, eins og venjulega.  Svo förum við í jólafrí og byrjum aftur af fullum krafti, miðvikudaginn 4.janúar.

Einhverjar breytingar  gætu orðið á æfingatímum hópanna (fer eftir stundatöflum þjálfara), við munum láta ykkur vita af því um leið og það skýrist.

Kær jólakveðja,

Þjálfarar og stjórn