Jólafrí Fimleikadeildarinnar
Um leið og stjórn og starfsmenn Fimleikadeildar Keflavíkur óska iðkendum og aðstandendum deildarinnar gleðilegra jóla minnum við á jólafrí deildarinnar. 5 ára hóparnir byrja í jólafríi í dag, mánudaginn 10.desember. Hjá öðrum hópum er síðasta æfing fyrir jólafrí 14. desember nema hjá A1, A2, T1 og T2 en þjálfarar afhenda æfingaprógramm fyrir þá hópa í vikunni. Æfingar hefjast samkvæmt stundaskrá mánudaginn 7. janúar. Innritun í krakkahópa 3-5 ára verður föstudaginn 4. janúar.