Íslandsmót í þrepum
Íslandsmót í þrepum verður haldið í fimleikahúsi Bjarkana, við Haukahraun í Hafnarfirði, laugardaginn 5. mars.
Keppní 4. - 5. þrepi hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 12:40. Þær stöllur Ingunn Eva Júlíusdóttir og Elma Rósný Arnarsdóttir ætla að halda uppi heiðri Fimleikadeildar Keflavíkur og keppa í 4. þrepi.
Keppni í 1. - 3. þrepi hefst kl. 15:00 og lýkur kl. 18:00. Þar ætla þær Helena Rós Gunnarsdóttir, Lilja Björk Ólafsdóttir og Rakel Halldórsdóttir að láta ljós sitt skína.
Um leið og við óskum stúlkunum góðs gengis hvetjum við fimleikaáhugafólk að skella sér í Bjarkirnar og hvetja stúlkurnar áfram.
Fimleikakveðja
Þjálfarar og stjórn