Íslandsmót í þrepum
Laugardaginn 28. mars fór fram Íslandsmót í þrepum en þar keppa stigahæstu keppendur á FSÍ mótum vetrarins í áhaldafimleikum. Fimleikadeild Keflavíkur var með 2 keppendur í 4 þrepi, Rakel Halldórsdóttur og Helenu Rós Gunnarsdóttur. Þær stóðu sig mjög vel og var Helena með 55,216 stig samanlagt og Rakel 53,965 samanlagt. Flottar stelpur þarna á ferð.
Myndir frá fimleikar.com