Íslandsmót í hópfimleikum
Helgina 10.-11. mars fór fram Íslandsmót í hópfimleikum. Fimleikadeild Keflavíkur náði inn lágmörkum í tveimur hópum inn á mótið og vegnaði þeim ágætlega. Annar hópurinn tók þátt í keppni á dýnu en hinn keppti á trampólíni. Hópunum gekk ágætlega en ekki náðu þeir á verðlaunapall að þessu sinni en vissulega mikill sigur fyrir deildina að hafa náð tveimur hópum inn á mótið.