Innritun í krakkahópa
Fimleikadeild Keflavíkur verður með innritun í krakkahópa og fullorðinsfimleika í K húsinu, fimmtudaginn 7. janúar frá kl. 18.00-19.00. Einnig eru nokkur pláss laus í strákatrompi en það er fyrir stráka á unglingsaldri. Gengið verður frá greiðslu á skráningardegi. Athugið að þau börn sem voru í krakkahópum fyrir jól þurfa að skrá sig aftur.