Fimleikar | 26. maí 2004
Innanfélagsmót 2004
Innanfélagsmót fimleikadeildar Keflavíkur var haldið í íþróttahúsinu við Sunnubraut 18. apríl síðastliðin. Um 170 börn kepptu á mótinu sem tókst vel í alla staði. Eva Berglind Magnúsdóttir var innanfélagsmeistari í áhaldafimleikum þriðja árið í röð. Heiðrún Ósk Þórðardóttir var síðan innanfélagsmeistari í almennum fimleikum einnig þriðja árið í röð. Óskar fimleikadeildin þeim kærlega til hamingju með meistaratitlana sem og öllum öðrum vinningshöfum.