Innanfélagsmeistarar Fimleikadeildar Keflavíkur
Innanfélagsmeistarar Fimleikadeildar Keflavíkur voru krýndir um helgina. Á föstudagskvöldið var keppt í hópfimleikum og vann H3 í keppni yngri flokka með 17,6 stig samanlagt. Þjálfari stúlknanna er Ásdís Ólafsdóttir. H1 var hlutskarpastur í hópi eldri flokka með 20,9 stig samanlagt. Þjálfari þeirra er Hildur María Magnúsdóttir.
H1 er því innanfélagsmeistari í hópfimleikum 2007.
Á laugardeginum var síðan keppt í áhaldafimleikum. Í yngstu flokkunum C og D er ekki keppt til verðlauna en allir iðkendur sýna hvað í þeim býr og í lokin fá allir verðlaunapening fyrir þátttökuna. Í 6. þrepi B-hópa var Margrét Guðrún Svavarsdóttir í 1 sæti með 57,7 stig samanlagt. Í 2 sæti var Guðrún Eir Jónsdóttir með 56,3 stig samanlag og í 3 sæti var Júlía Svava Tello með 56,05 stig samanlagt. Í 6. þrepi A-hópa var Agnes Sigurþórsdóttir í 1 sæti með 61,3 stig samanlagt, í 2 sæti var Harpa Hrund Einarsdóttir með 60,55 stig samanlagt og í 3 sæti var Berglind Björgvinsdóttir með 60,3 stig samanlagt. Í 5. þrepi fimleikastigans var Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir með 55,7 stig samanlagt, í 2 sæti var Helena Rós Gunnarsdóttir með 55,6 stig samanlagt og í 3 sæti Eydís Ingadóttir með 54,8 stig samtals. Í A1 sem eru 4, 3 og 2 þrep var Selma Krístin Ólafsdóttir í 1 sæti samanlagt með 57,9 stig, Þorgerður Magnúsdóttir var í öðru sæti með 57,2 stig samtals og í 3 sæti var Rakel Halldórsdóttir með 53,5 stig samtals.
Selma Kristín Ólafsdóttir er því innanfélagsmeistari í áhaldafimleikum 2007.
Önnur úrslit má nálgast hér
Stjórn og þjálfarar óska öllum vinningshöfum til hamingju og þakkar iðkendum fyrir drengilega keppni.