Fréttir

Innanfélagsmeistarar 2025
Fimleikar | 20. maí 2025

Innanfélagsmeistarar 2025

Þar síðustu helgi fór Innanfélagsmót 2025 fram en að þessu sinni kepptu allir iðkendur okkar sömu helgina.

Á föstudeginum fór hópfimleikahlutinn fram og kepptu þar allir keppnishópar í hópfimleikum, 1. - 5. flokkur. Á innanfélagsmóti keppa hóparnir ekki samkvæmt getu heldur skiptir framkvæmdin öllu máli. Innanfélagsmeistarar í hópfimleikum í ár var 4. flokkur eldri en þær framkvæmdu sínar æfingar af tærri snilld.

Seinni hluti föstudags var áhaldafimleikahluti, þá kepptu iðkendur í 1. - 5. þrepi. Innanfélagsmeistari í áhaldafimleikum í ár var Guðlaug Emma Erlingsdóttir en hún sýndi frábærar æfingar í 1. þrepi.

Á laugardeginum voru veitt þátttökuverðlaun fyrir keppnisæfingar en þann dag kepptu árgangar 2017-2019. Það var glatt á þingi og voru allir keppendur alsælir með medalíuna sína.

Að lokum kepptu iðkendur í 6. þrepi og 5. þrepi létt í áhaldafimleikum á sunnudeginum.

Það var ótrúlega gaman að sjá alla þessa keppndur á einni helgi en alls voru 265 keppendur á mótinu. Magnús Orri tók myndir af öllum hlutum mótsins og má sjá þær hér.

Til hamingju allir með glæsilegan árangur.

 

Myndasafn