Fréttir

Fimleikar | 28. febrúar 2009

Hello kitty mót

Sunnudaginn 15. febrúar hélt Grótta hello kitty mót í áhaldafimleikum en það er vinamót í 5. og 6. þrepi íslenska fimleikastigans.  Mótið er liðakeppni og sendi fimleikadeildin í Keflavík lið í báðum þrepum og var liðið í 5. þrepi í 3 sæti og liðið í 6. þrepi í 6 sæti.

Liðin voru skipuð eftirfarandi stúlkum.

5. þrep: Alísa Rún Andrésdóttir, Brita Rún Ingimundardóttir, Brynja Ósk Guðmundsdóttir, Heiðrún Birta Sveinsdóttir og Huldís Edda Annelsdóttir.

6. þrep:  Heiðdís Inga Halldórsdóttir, Hera Sóley Sölvadóttir, Ólöf Björg Sigurðardóttir, Petrína Bergmann Ólafdóttir, Selma Sól Hjaltadóttir og Snædís Glóð Vikarsdóttir

Til hamingju með árangurinn stúlkur.