Haustmót í hópfimleikum
Helgina 24. og 25. nóvember var haldið haustmót í hópfimleikum í íþróttahúsi Gerplu í Versölum í Kópavogi. Keflavík sendi eitt lið á mótið sem samanstóð af 12 stelpum á aldrinum 13-16 ára. Þær stóðu sig með stakri prýði og komu heim með 3 verðlaunapeninga. Þær sigruðu á dýnu, lentu í 3ja sæti á trampólíni og í 2 sæti samanlagt. Þjálfarar stúlkanna eru Cezar og Helga Dagný. Til hamingju með þetta stelpur og þjálfarar.
Stúlkurnar á myndinni heita:
Efri röð: Sigríður, Brynja, Guðrún, Arndís, Elísa og Hólmfríður
Neðri röð: Kristín, Elva, Bryndís, Berglind og Lovísa.