Fréttir

Fimleikar | 17. október 2008

Haustmót FSÍ

Haustmót FSÍ í áhaldafimleikum verður haldið helgina 17-19 október í Ármannsheimilnu í Laugardal.  Fimleikadeild Keflavíkur sendir 7 keppendur í 4 þrepi íslenska fimleikastigans.  Þær hefja keppni á sunnudagsmorgni kl. 10.00 og eru áætluð mótslok kl. 12.45.  Fimleikadeildin hvetur aðstandendur og iðkendur deildarinnar til að fara á mótið og sjá þessar duglegu stelpur.