Haustmót FSÍ
Haustmót FSÍ í áhaldafimleikum var haldið helgina 10. og 11. nóvember. Fimleikadeild Keflavíkur sendi 7 keppendur á mótið og náðu tvær að vinna sig um þrep. Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir fékk 55,132 stig, var í 4 sæti samanlagt og vann sig upp í 4 þrep og Eydís Ingadóttir fékk 53,533, var í 3 sæti samanlagt og vann sig einnig upp í 4 þrep. Fimleikadeild Keflavíkur óskar þeim til hamingju með árangurinn.